Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Forsíða | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 18:50
Jimenez slökkti í Westwood og kveikti á ný í vindlinum
Elsti Spánverjinn á Evrópumótaröðinni og jaxl til magra ára, hinn 46 ára Miguel Angel Jiménez, slökkti í stóra vindlinum sínum eftir að hafa séð Lee Westwood jafna við hann á 72. holu á Emirates golfvellinum á Dubai Desert Classic mótinu á Evrópumótaröðinni. Þeir fóru í bráðabana og eftir tvær jafnar holur kláraði sá gamli toppmann mótaraðarinnar, Lee Westwood á 9. braut, þriðju bráðabanaholunni, þegar hann setti niður rúmlega metra pútt.Westwood missti aðeins lengra pútt.
Spánverjinn var í vörn fyrstu tvær brautirnar í bráðabananum þegar þeir léku 18. holuna. Westwood haði tækifæri á að klára í bæði skiptin en náði ekki að setja pútt ofan í fyrir fugli. Í fyrra skipti var Jimenez heppinn því bolti hans stöðvaðist á tjarnarbrúninni en hann náði að vippa og bjarga pari. Í seinna skiptið setti Jimenez í glompu í þriðja höggi og bjargaði pari með því að setja um 3 metra pútt ofan í. Westwood átti pútt í bæði skiptin sem stoppuðu nálægt holunni.
Á þriðju bráðabanaholunni hittu hvorugir flöt í öðru höggi og þurftu að vippa inn á. Westwood var um 2 metra frá en Miguel rúman metra en þó niður í móti pútt. Lee missti en Spánverjinn var öryggið uppmálað og trggði sér sigur.
Með sigrinum komst Miguel í topp 50 á heimslistanum og það skiptir miklu máli í dag en það tryggir þátttökurétt í öllum risamótunum.
Westwood var að vonum svekktur eftir að hafa þurft að lúta í lægra haldi gegn Spánverjanum. Hann sló mun betur en Spánverjinni í bráðabananum og einnig mun lengra í upphafshöggunum en það dugði ekki að þessu sinni.
Lee tryggði sér sem kunnugt er sigurinn í Kapphlaupinu til Dubai í nóvember með sigri á lokamótinu þar. Með sigri núna hefði hann unnið tvisvar í röð í Dubai.
Bráðabananum lauk rétt fyrir myrkur í Dubai. Aðeins voru eftir um 30 mínútur af birtutíma.
Jimenez setur niður lokapúttið á þriðju bráðabanaholunni í dag. Að neðan má sjá Spánverjann með Dubai furstum og flugfreyjum sem jafnan skreyta Dubai mótið. Myndir/golfsupport.nl




