Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 14:06
Spilar Tiger á Accenture?
Endurkoma Tiger Woods gæti verið nær en margir halda þar sem orðrómur þess efnis að hann ætli að taka þátt á Accenture heimsmótinu í holukeppni sem hefst þann sautjánda þessa mánaðar.
Tiger hefur eins og allir vita verið frá keppni til að koma lífi sínu á réttan kjöl og bjarga hjónabandi sínu eftir að upp komast að hann hafi verið konu sinni ótrúr.
Miklar vangaveltur hafa verið upp þar sem flestir kylfingar hafa kallað eftir því að Tiger snúi aftur sem fyrst og hefur flestum golfspekingum þótt líklegt að hann snúi aftur fyrir Masters á Augusta í apríl.
Ástralskt blað hélt því fyrst fram að talsmenn Tigers hafi verið í sambandi við mótshaldara og hefur BBC einnig vitnað í áreiðanlegar heimildir sem styðja það.
Hvernig sem fer er ljóst að þetta mun verða mál málanna í golfheiminum fram að því að Tiger kemur fram og kynnir ákvörðun sína. Hvernig honum mun svo ganga að sýna yfirburði sína á ný er hins vegar önnur saga.