Bookmark and Share

Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 12:58

Jimenez vann í Dubai – Kunnugleg nöfn í topp 10


Miguel Angel Jimenz frá Spáni, bar sigur úr býtum á Dubai Desert Classic mótinu sem lauk fyrir skömmu á Evrópumótaröðinni. Hann og Lee Westwood voru jafnir eftir 72 holur en hinn 46 ára gamli Spánverji vann Westwood eftir þrjár holur í bráðabana.

Jimenez, sem jafnan er kallaður vélvirkinn af vinum sínum sökum geysilegs bílaáhuga, lék samtals á 11 höggum undir pari eins og Lee Westwood. Þeir voru höggi á undan Tælendingnum Thongchai Jaidee og Lee Westwood. Sá síðarnefndi hefur verið heitur að undanförnu og varð m.a. í þriðja sæti á Quatar Masters mótinu um síðustu helgi.

Kylfingurinn ungi, Rory McIlroy sem átti titil að verja í mótinu, er væntanlega ekki sáttur með frammistöðu sína á lokahringnum sem hann lék á einu höggi yfir pari og missti flugið á lokaholunum þó svo hann hefði náð fugli á síðustu brautinni. Eins var Spánverjinn Quiros í góðum málum fram eftir lokahringnum en pútterinn var ískaldur og hann missti mörg pútt og toppaði það svo með klúðri á lokaholunni þegar hann sló í vatnið. 

Tom Watson framkallaði hins vegar fram góðan hring í dag og kom í hús á 68 höggum og vippaði sér þar með upp í 8. sætið í mótinu. Svo sannarlega ennþá líf í Tom Watson á golfvellinum.

Fyrir sigurinn fær Jimenez tæpar 300 þús. evrur en ef litið er á Race to Dubai tekjulistann þá er Charl Schwartzel efstur með um 500 þús. evrur á þessu keppnistímabili en Robert Karlsson frá Svíþjóð er annar.

Sjá lokastöðuna í mótinu
Sjá stöðuna á tekjulistanum

Myndir/golfsupport.nl: Miguel Angel Jimenez sýndi að hann er einn af fremstu kylfingum í heimi.
jjk@vf.is

 

 

Til Baka