Forsíða | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 12:57

Jimenez þurfti að slökkva í vindlinum og fara í bráðabana


Miguel Angel Jiménez kveikti sér í risavindli eftir að hafa lokið leik á 11 höggum undir pari á Dubai Desert Classic og fylgdist með Lee Westwood á átjándu brautinni. Englendingurinn fékk góðan fugl og jafnaði við Spánverjann og nú eru þeir á leið í bráðabana á 18. brautinni.

Mikil spenna var á lokaholunum en þessir reyndu kappar léku báðir á pari lokahringinn. Margir voru í vandræðum í honum og kenndu margir um erfiðum pinnastaðsetningum. Tom Watson sem verður 60 ára á árinu kom mest á óvart þegar hann lék lokahringinn á 4 undir pari.

Westwood fékk nokkuð öruggan fugl á lokaholunni. Hann sló annað höggið sitt með 3 tré í flatarkant og púttaði þaðan af 15 metra færi alveg upp að pinna.