Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 11:15

Watson í miklu stuði í Dubai


Tom „gamli“ Watson er svo sannarlega ekki dauður úr öllum æðum því að hann lauk leik á Dubai Desert Classic í dag á 6 höggum undir pari og er sem stendur í 8.-10. sæti. Hann átti góðan lokadag og er eflaust sáttur við afrakstur vikunnar.

Sama spennan er á toppi mótsins sem endranær þar sem fjórir eru nú efstir á 10 höggum undir pari þegar þeir eru rúmlega hálfnaðir með lokahringinn.

Staðan

Myndir Golfsupport.nl - Watson í Dubai