Bookmark and Share

Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 09:13

Stricker heitur á Riviera - Leiðir með fimm höggum


Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker er kominn með fimm högga forystu á Northern Trust Open mótinu, þrátt fyrir að hafa aðeins leikið 14 holur á þriðja hringnum. Hann er samtals á 14 höggum undir pari en veður hefur gert kylfingum erfitt um vik enn sem komið er í mótinu.

Enski kylfingurinn Luke Donald er annar í mótinu ásamt J.B. Holmes og Anders Romero á níu höggum undir pari en nokkrir kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik á þriðja hring.

„Þetta var góður dagur. Ég veit að ég er með góða forystu en ég þarf að hafa fyrir hlutunum á morgun og leika minn leik. Ég ætla að passa að gera það sama og ég hef gert fyrstu þrjá hringina,“ sagði Stricker eftir hringinn sem hann þarf þó að klára snemma í morgunsárið.

Staðan

Myndir/golfsupport.nl: Steve Stricker er einn af heitustu kylfingunum í dag.
jjk@vf.is