Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni

Fréttir | laugardagur 6. febrúar 2010 | 17:29
Puma veðjar á Fowler til að bæta sölu vestanhafs
Íþróttavöruframleiðandinn Puma vonast til þess að athyglin sem kylfingurinn Rickie Fowler fær, verði til þess að sala á vörum fyrirtækisins í Bandaríkjunum aukist. Ted Fletcher, sem er forseti Puma í Bandaríkjunum, segir að fyrirtækið fylgist vel með framgöngu kylfingsins unga.
„Til þess að ná betri árangri með vörur okkar þá verðum við að ná betri árangri í Bandaríkjunum,“ sagði Fletcher en það er m.a. helsta ástæða þess að fyrirtækið lét ástralska kylfinginn Geoff Ogilvy róa á dögunum.
Þess í stað vonast Puma til að Fowler muni auka sölu vestanhafs. „Við teljum að hann passi fullkomlega að okkar stefnu,“ segir framkvæmdastjórinn.
Frægðarsól Rickie Fowler hefur risið hratt að undanförnu og var hann ekki langt frá því að sigra á sínu fyrsta móti á PGA-mótaröðinni á síðasta ári. Hann varð hins vegar annar eftir umspil um sigurinn við Troy Matteson. Hann gerðist atvinnumaður síðasta haust eftir Walker-bikarinn og er talinn einn efnilegasti kylfingur heims.
Myndir/golfsupport.nl: Rickie Fowler er einn efnilegasti kylfingur Bandaríkjamanna.
jjk@vf.is






