Fréttir | laugardagur 6. febrúar 2010 | 16:49
Boðið upp á námskeið fyrir golfvallastarfsmenn
Stefnt er að því að setja af stað námskeiðaröð fyrir starfsmenn íþrótta- og golfvalla við Landbúnaðarháskóli Íslands í haust í samvinnu við Samtök íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi (SÍGÍ), KSÍ og GSÍ.
Í röðinni eru fjögur námskeið sérsniðin að þörfum þessara starfsmanna. Tilgangurinn er að styrkja faglega þekkingu starfsmanna íþrótta- og golfvalla sem væntanlega skilar sér í betri umhirðu á völlunum.
Bjarni Þór Hannesson, grasvallatæknifræðingur, vinnur nú að skipulagningu þessarar námskeiðaraðar. Bjarni lauk nýlega mastersnámi í grasvalltæknifræði (e. Sport Surface Technology), fyrstur Íslendinga. Bjarni hefur unnið við viðhald golfvalla á Íslandi undanfarin 15 ár, en hann hefur einnig starfað á þekktum völlum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Má meðal annars nefna Old Course í St. Andrews í þessu sambandi.
Fyrirkomulag námskeiðanna verður með svipuðu sniði og námskeið Grænni skóga, en þar mæta nemendur á föstudegi kl. 16-19 og laugardegi kl. 9-16. Tvö námskeiðanna eru á haustönn og tvö á vorönn.