Bookmark and Share

Fréttir | laugardagur 6. febrúar 2010 | 13:49

Pavin velur aðstoðarmenn fyrir Ryder


Corey Pavin, fyrirliði bandaríska Ryder-liðsins, hefur tilnefnt fjóra aðstoðarfyrirliða fyrir mótið á Celtic Manor í október. Þeir eru Tom Lehman, Paul Gydos Davis Love III og Jeff Sluman.

Valið kom flestum á óvart, þó ekki með Tom Lehman, sem er einn af bestu vinum Pavins og hafði hann sem aðstoðarmann þegar hann stýrði sjálfur liði Bandaríkjanna 2006.

Love hefur tekið þátt á Ryder keppnum og var að gæla við að komast í liðið í ár sem keppandi, en þáði boð Pavins. Þá er Goydos óvæntur valkostur þar sem hann hefur aldrei keppt á Ryder, en er afar vinsæll meðal kylfinga á PGA mótaröðinni.

Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópu, hefur enn ekki tilkynnt um val sitt á aðstoðarmönnum.

H: AP

Mynd/golfsupport.nl

 

 

Til Baka