Bookmark and Share

Fréttir | laugardagur 6. febrúar 2010 | 12:49

Fjórir jafnir á toppnum í Dubai


Sama spennan er á toppi Dubai Desert Classic þar sem fjórir kylfingar eru efstir og jafnir á 11 höggum undir pari. Lee Westwood og Miguel Angel Jimenez eru komnir upp að hlið Thongchai Jaidee, sem og Alvaro Quiros.

Rory McIlroy er í fimmta sæti á níu höggum undir, og höggi þar á eftir eru Edoardo Molinari og Marcus Fraser.

Staðan

Mynd úr safni golfsupport.nl - Alvaro Quiros átti góðabn dag og skaust upp á toppinn við hlið þriggja annarra.