Fréttir
Leita
Ýmsar fréttir
Mót í gangi
Golfkennarar
Golfklúbbar
Áhugavert efni
Fréttir | laugardagur 6. febrúar 2010 | 08:39
Leik frestað á Riviera - Johnson og Stricker efstir
Steve Stricker og Dustin Johnson voru efstir og jafnir á Northern Trust Open þegar leik var frestað á öðrum hring í nótt. Mikil rigning hefur verið á Riviera þar sem mótið fer fram og dimmt yfir þannig að ekki náðu allir að klára áður en birtuskilyrði kölluðu á frestun.
Stricker og Johnson létu það ekki á sig fá og eru á 10 höggum undir pari, en Johnson á enn eftir að ljúka tveimur holum. Þremur höggum á eftir þeim er Argentínumaðurinn Andres Romero sem á þrjár holur eftir.
Stricker lék á 66 höggum, eða 6 undir pari, sem er magnað miðað við aðstæður, og Johnson er 3 undir eins og er, þökk sé glæsilegum ási á sjöttu holu.
Ummæli Paul Goydos vöktu mikla kátínu, en þegar hann heyrði að Johnson væri 11 undir hváði hann. „Það er eins og að vera 47 höggum undir eftir þrjá hringi á Hope (Bob Hope Classic).“
Rigningin var svo mikil að á tímabili voru starfsmenn að rúlla vatni af teigum, en rigning hentar Johnson að vísu vel þar sem hann er högglangur og hefur áður unnið mót í mikilli rigningu t.d. á Pebble Beach í fyrra og á Turning Stone árið 2008.
H: pgatour.com
Mynd/pgatour.com - Dustin Johnson slær á sjöttu holu. Þetta var eina skot hans á þeirri holu.






