19. holan | þriðjudagur 19. ágúst 2008 | 23:14
Sigríður Anna sló draumahöggið í Kína
Sigríður Anna Guðjónsdóttir úr GO, móðir Ragnheiðar Ragnarsdóttur sundkonu sem keppti á Ólympíuleikunum, skellti sér í golf suður af Peking í dag. Hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 12. holu vallarins. Hún notaði 7 járn (Callaway Lady Big Bertha), en holan er 130 yarda af rauðum teig, par-3.
Höggið var einkar glæsilegt, þráðbeint og lenti á flötinni fyrir framan flaggið og rann boltinn beint á stöngina og ofaní. Mikið tilstand var í klúbbhúsinu á eftir hringinn, en Kínverjar taka þessu með mikilli alvöru og gleði. Sigríður Anna var leyst út með gjöfum og fer á heimasíðu klúbbsins, sem "Hole-in-One member".
Með Sigríði Önnu í holli voru eiginmaðurinn Ragnar Marteinsson úr GO og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari úr NK, ásamt þremur kínverskum kadddí-stúlkum/kylfumeyjum sem ærðust af gleði yfir þessu.
Meðfylgjandi er mynd af Sigríði með boltann góða og síðan við hlið kylfumeyjar sinnar.
