Fréttir | þriðjudagur 11. október 2011 | 09:51
Bíómynd um Seve Ballsteros væntanleg
Áætlanir um gerð kvikmynda um goðsögnina Seve Ballesteros eru langt á veg komnar. Englendingurinn Stephen Evans framleiðir myndina sem gerist þegar Ballesteros er á aldrinum 16-19 ára.
„Ef þú þekkir ekki uppvaxtarár Seve þá munt þú aldrei skilja hvernig persóna hann var og gefa honum þá auðmýkt sem hann á skilið,“ segir Evans sem meðal annars hefur gert kvikmyndirnar The Madness of King George og The Wings of the Dove.
Leit stendur nú yfir af spænskum leikurum sem fá það vandasama hlutverk að leika Ballesteros sem barn og unglingur. Hann féll frá í vor, 54 ára gamall eftir afar erfið veikindi. Uppkast af handriti mun vera tilbúið en ljóst er að golfáhugamenn munu taka því fagnandi að fá að kynnast þessum einstæða kylfingi nánar.
„Seve kom upp úr engu og barðist við undarleg öfl. Hann átti eina sérstæðustu æsku sem ég hef nokkurn tímann lesið mig til um. Þetta er eins og upp úr bók eftir Charles Dickens,“ segir Evans.
Ballesteros vann fimm risamót á glæsilegum ferli og er einn dáðasti kylfingur sem leikið hefur íþróttina. Spánverjinn greindist með heilaæxli árið 2008 og náði sér aldrei af þeim veikindum. Hann hafði þá að mestu lagt golfkylfunum vegna bakmeiðsla.