Fréttir | föstudagur 30. september 2011 | 14:44

Fyrsta þrípúttið hjá Donald eftir 449 holur


Englendingurinn Luke Donald þrípúttaði í gær á 16. holu Kingsbarnes vallarins í Alfred Dunhill Links mótsins sem fram fer í Skotlandi. Það væri kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þetta var fyrsta þrípútt Donald eftir að hafa leikið 449 holur án þess að þrípútta.

Það þýðir að Donald lék 25 keppnishringi í sjö mótum án þess að þrípútta sem er magnaður árangur og undirstrikar hversu góður hann er með pútternum. Það verður þó seint sagt að þrípúttið hjá Donald hafi verið klaufalegt því hann var 70 fet frá holunni fyrir fyrsta púttið og náði ekki að tryggja parið.

Ég er svekktur. Það eru litlu sigrarnir í golfinu sem við leitumst eftir að ná. Ég hefði viljað ná enn lengra. Þegar ég horfi tilbaka þá get ég verið nokkuð sáttur með hvað ég komst langt, sérstaklega ef litið er til þess hve hraðar flatirnar eru í Bandaríkjunum,“ sagði Donald eftir hringinn í gær.