Fréttir | laugardagur 24. september 2011 | 15:36
Bill Murray sá um uppvaskið eftir partý í St. Andrews
Alfred Dunhill Links mótið fer fram á St. Andrews, Carnoustie og Kingsbarns golfvöllunum í næstu viku. Mótið er eitt það stærsta á Evrópumótaröðinni á hverju ári og eru margir af bestu kylfingum heims með í mótinu.
Það eru einnig þekktir leikarar og áhugamenn sem taka þátt í mótinu því fyrstu þrjá keppnisdagana er einnig leikið í liðakeppni. Meðal þekktra einstaklinga sem hafa leikið í mótinu á undanförnum árum eru þeir Bill Murray, Hugh Grant, Ruud Gullit, Johan Cruyff svo dæmi séu tekin.
Leikarinn Bill Murray gerði sér glaðan dag eftir að hafa lokið keppni í mótinu fyrir nokkrum árum. Hann skellti sér í gleðskap með háskólanemum í St. Andrews og skemmti sér með þeim í heimahúsi alla nóttina. Þegar háskólastúdentarnir vöknuðu daginn eftir stóð Murray við eldhúsvaskinn og var að vaska upp og þrífa. Vakti það mikla kátínu og eftirtekt. Sagan er nú orðin alþekkt í St. Andrews.
Hugh Grant lyfti sér einnig upp eftir mótið og fór hann einnig í gleðskap með stúdentum í St. Andrews háskólanum. Fjölmiðlar komust á snoðir um málið og þegar hann yfirgaf heimili stúdentana daginn eftir þá mættu honum nokkur fjöldi ljósmyndara sem kom sér óþægilega fyrir kappann.
Mikill áhugi er fyrir Alfred Dunhill mótinu í St. Andrews og mótið eitt af hápunktum ársins í bænum. Íbúafjöldi bæjarins er aðeins um 17 þúsund manns. Stúdentar eru afar áberandi í bænum og snýst lífið hér að mestu um háskóla og golf. Íbúar St. Andrews fá frían aðgöngumiða í Alfred Dunhill mótið sem jafnan dregur að sér fjölda áhorfenda.
Jón Júlíus Karlsson skrifar frá St. Andrews