19. holan | mánudagur 29. ágúst 2011 | 13:50
Leikmaður Swansea fótbrotnaði á golfvellinum
Knattspyrnumaðurinn Alan Tate, sem leikur með Swansea í ensku úrvalsdeildinni, mun ekki leika knattspyrnu næstu mánuði eftir að hann fótbrotnaði fyrir skömmu. Það var þó ekki við knattspyrnuiðkun sem Tate fótbrotnaði heldur var hann á golfvellinum þegar slysið átti sér stað.
Þessi 28 ára varnarmaður var farþegi í golfbíl á golfvelli í Wales þegar ökumaður golfbílsins velti bílnum klaufalega á vellinum. Auðvelt er að velta golfbíl ef ekki er farið að öllu með gát. Tate fótbrotnaði á vinstri fæti og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hlúð var að meiðslum hans.
Tate er einn af reynslumestu leikmönnum Swansea og hefur leikið með liðinu í öllum deildum á Englandi. Hann hefur verið hjá liðinu í tíu ár en ljóst að nokkur bið verður í hann næsta leik fyrir liðið eftir martröðina á golfvellinum.