GS_opindagur.leiran.2012mai


19. holan | föstudagur 26. ágúst 2011 | 08:54

Rory staðfestir samband sitt við bestu tenniskonu heims


Norður-Írinn Rory McIlroy hefur staðfest að hann eigi í ástarsambandi við dönsku tennisstjörnuna Caroline Wozniacki sem er besta tenniskona heims um þessar mundir. McIlroy var á meðal áhorfenda á New Haven Open tennismótinu þar sem kærasta hans er á meðal keppenda. Um sannkallað stjörnupar er að ræða í íþróttaheiminum enda bæði meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein. Búast má við að athyglin á McIlroy muni aukast nokkuð í kjölfarið.

McIlroy, sem sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu fyrr í sumar, er að jafna sig eftir að hafa meiðst á hendi í PGA Meistaramótinu fyrr í þessum mánuði. Hann segist vera 85% heill af meiðslunum og er vongóður um að leika í European Masters mótinu sem fram fer í næstu viku.

Þessi 22ja ára Norður-Íri hefur haldið sér við með að æfa á æfingasvæðinu á River Highlands vellinum þar sem Travelers Championship mótið fer fram árlega. Hann hefur farið sér hægt enda glímir hann við meiðsli í úlnlið og eru kylfingar oft lengi að ná sér af fullu af slíkum meiðslum.