19. holan | fimmtudagur 11. ágúst 2011 | 07:47
Fowler sagði Watson að hætta að skæla
Það er spennandi helgi framundan í golfheiminum því PGA Meistaramótið í golfi hefst í dag í Atlanta, Bandaríkjunum. Allir bestu kylfingar heims verða með í mótinu og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig kylfingum tekst að glíma við hinn langa Highlands völl í Atlanta.
Bandarísku kylfingarnir Rickie Fowler og Bubba Watson gætu unnið sig inn í hjörtu landa sinna með sigri um helgina. Watson var nálægt því í fyrra þegar hann tapaði í bráðabana fyrir Martin Kaymer um sigurinn. Fowler gaf Watson þó góð ráð fyrir lokarisamót ársins.
„Rickie sagði mér að hætta að haga mér eins og krakki og spila gott golf. Hætta að vera alltaf að skæla og kenna öðru fólki, vindi eða legu um ófarir mínar. Hann sagði mér að manna mig upp,“ sagði Watson.
Myndir/golfsupport.nl: Bubba Watson (efri) hefur látið tárin óspart renna niður vanga þegar hann sigrar. Rickie Fowler (neðri) hefur sagt honum að manna sig upp.