GS_opindagur.leiran.2012mai


19. holan | miðvikudagur 10. ágúst 2011 | 14:06

Fisher gaf verðlaunafé til sjúkrahús í Killarney


Englendingurinn Ross Fisher stóð í þakkarskuld við sjúkrahús í Killarney í Írlandi sem annaðist ungan son hans í veikindum fyrir skömmu. Vegna veikinda sonar síns þá missti hann af Bridgestone Invitational mótinu sem fram fór í Ohio, Bandaríkjunum um síðustu helgi. Þar sem aðeins 76 bestu kylfingar heims fá þátttökurétt í mótið fékk Fisher um fjórar milljónir í verðlaunafé fyrir að lenda í síðasta sæti. Ekki slæm laun það fyrir að taka ekki þátt í mótinu.

Fisher ákvað að gefa verðlaunaféð til sjúkrahússins í Killarney en hann heillaðist af þeirri umönnun sem sonur hans fékk á sjúkrahúsinu. Sonur hans er nú búinn að ná sér eftir að hafa fengið vírus.

Fisher snýr aftur til keppni á PGA Meistaramótinu sem hefst á morgun í Atlanta, Bandaríkjunum. Hann hefur best náð 19. sæti í mótinu til þessa og er líklega staðráðinn að bæta þann árangur.