19. holan | þriðjudagur 9. ágúst 2011 | 16:14
Barkley sár út í Woods
Bandaríska körfubolta goðsögnin Charles Barkley var góður vinur Tiger Woods en eftir að Woods lenti í bílslysinu fræga árið 2009 þá hefur Barkley ekki heyrt tangur né tetur í fyrrum besta kylfingi heims. Barkley vandar Woods ekki kveðjurnar.
„Ég hélt að við værum vinir. Ég talaði við hann einu sinni í viku í næstum 15 ár og við skemmtum okkur oft saman. Ég hef ekki heyrt í honum í tvö ár og velti því fyrir mér hvað sé eiginlega í gangi,“ sagði Barkley í viðtali í sjónvarpsþætti Mike Lupica á Golf Channel.
Barkley, ásamt Michael Jordan, eru sagðir í bandarískum fjölmiðlum hafa haft slæm áhrif á Woods og leitt hann inn í lífsstíl sem síðan hefur orðið honum til mikilla trafala. Bæði Barkley og Jordan hafa neitað þessu. Woods virðist hafa fjarlægt sig frá mörgum af fyrri vinum eftir að upp komst um stórfellt framhjáhald kylfingsins.
„Ég velti því fyrir mér hvað sé í gangi og ég er leiður yfir þessu. Hver er í kringum hann, styður hann áfram og hefur hans hagsmuni að leiðarljósi. Ég veit ekki hvers vegna við höfum ekki talað saman í tvö ár,“ segir Barkley sem hefur náð sláandi slæmum árangri í golfíþróttina eftir frábæran körfuknattleiksferil.