19. holan | þriðjudagur 19. júlí 2011 | 23:47

McIlroy á stefnumóti með tennisstjörnu


Rory McIlroy er orðinn eitt stærsta nafnið í íþróttaheiminum eftir að hann sigraði í Opna bandaríska meistaramótinu í júní. Fjölmiðlar um allan heim fylgjast nú grannt með hinum 22ja ára gamla McIlroy sem nýlega sleit sambandi sínu við æskuástina, Holly Sweeney, en þau höfðu verið saman frá táningsaldri.

Síðastliðinn sunnudag sást McIlroy á stefnumóti með dönsku tennisstjörnunni Caroline Wozniacki sem er efsti kvenmaðurinn á tennisheimslistanum. Þau munu hafa kysst er stefnumótinu lauk.

McIlroy óskaði Wozniacki til hamingju með 21 árs afmælið fyrir skömmu á Twitter og þykir vera þeirra saman á veitingastað svekkta eldi á bál sögusagna um að þau eigi í rómantísku sambandi. Fari þau að stinga saman nefjum gæti McIlroy lent í miklum fjölmiðlafári líkt og Tiger Woods hefur glímt við á undanfarin ár.


Mynd af kossi þessara þekktu íþróttastjarna.