19. holan | miðvikudagur 13. júlí 2011 | 08:30
Sex ára stúlka fór holu í höggi
Sex ára bandarísk stúlka, Reagan Kennedy, fór holu í höggi á velli í Illinois-fylki í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Þessi greinilega feikiefnilega stúlka sló draumahöggið á þriðju holu The Links Ireland Grove vallarins. Hún sló með blendings kylfu af um 77 metra færi.
Faðir Reagan, Steve Kennedy, lét dóttur sína fara að slá golfbolta þegar hún var tveggja ára gömul og mun þessi stúlka vera feikilega efnileg.
„Hún verður betri með hverju árinu sem líður. Skorin hjá henni batna dag frá degi,“ sagði Steve faðir hennar.