19. holan | miðvikudagur 29. júní 2011 | 23:52

Plowman lék 1500 sinnum undir aldri


Að leika 18 holu golfhring á skori sem er undir aldri þínum er ansi merkilegt afrek. Mikla færni þarf í golfleiknum til að ná þeim áfanga en þeir eru margir lunknir eldri kylfingarnir vítt og breytt um heiminn sem hafa náð þessu afreki.

Það eru fáir kylfingar sem hafa leikið jafnoft undir aldri og Keith Plowman frá Nýja-Sjálandi. Hann lék yfir 1500 sinnum undir aldri og síðasta golfhring ævinnar lék hann á 87 höggum eða fjórum höggum undir aldri.

Hann deilir heimsmetinu yfir högg undir aldri en hann lék á 72 höggum á Maungakiekie golfvellinum í Nýja-Sjálandi en það var hans heimavöllur. Plowman fékk þann hring metinn í Heimsmetabók Guinness en hann deildir þessu meti ásamt þeim bandaríska kylfingnum James D. Morton. Báðir eru þeir fallnir frá.