Hleð inn spilara...


19. holan | þriðjudagur 28. júní 2011 | 22:51

GolfTV: Andreas Hartø býr yfir ótrúlegri tækni


Danski kylfingurinn Andreas Hartø tók þátt í Opna bandaríska meistaramótinu fyrir skömmu og skemmti áhorfendum á æfingasvæðinu með skemmtilegum tilþrifum. Hann hefur greinilega eytt miklum tíma á golfvellinum í gegnum tíðina því hann getur gert tilþrif sem við flest munum aldrei ná tökum á.

Hartø, sem leikur á Evrópumótaröðinni, getur tekið á móti bolta sem kastað er að honum, haldið boltanum á lofti með kylfunni og tekið svo á móti boltanum með hálsinum. Að lokum slær hann boltann með að láta hann detta niður með síðunni. Ótrúleg tækni hjá þessum 22 ára kylfingi.