GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


19. holan | föstudagur 10. júní 2011 | 10:45

Barkley skiptir yfir í vinstri sveiflu


Það eru fáir kylfingar með jafn slæma golfsveiflu og körfuboltastjarnan Charles Barkley. Þrátt fyrir að hafa lagt mikið á sig við æfingar og verið undir leiðsögn sveifluþjálfarans Hank Haney þá hefur hann ekki getað lagað sveiflu sína sem er fyrir löngu orðin fræg innan golfheimsins.

Barkley tekur reglulega þátt í pro-am mótum á PGA-mótaröðinni. Þrátt fyrir að hann sé afleitur í golfi þá þykir honum fátt skemmtilegra en að keppa á golfvellinum. Nú hefur hann ákveðið að gera róttækar breytingar á golfiðkun sinni því hann ætlar framvegins að slá með vinstri sveiflu.

Þetta getur ekki orðið verra,“ sagði Barkley. Hann vermir jafnan botnsætið í þeim golfmótum sem hann tekur þátt í enda hefur hann ekki náð að laga skrautlega golfsveiflu sína. Barkley segir að hann sé alveg jafn lélegur í golfi þó hann slá með vinstri sveiflu. Helsti munurinn er þó sá að hann er afslappaðri í golfsveiflunni. Hver veit nema að Barkley takist loksins að finna taktinn í golfinu?