GS_opindagur.leiran.2012mai


19. holan | föstudagur 10. júní 2011 | 09:16

Ishikawa biðst afsökunar á ólöglegum akstri


Japanski kylfingurinn Ryo Ishikawa hefur beðist afsökunar eftir að hann var stoppaður nýverið við akstur. Hann ók bíl í Japan með ökuskírteini sem var ekki orðið löglegt í Japan en hann tók bílpróf sitt í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Ishikawa kemur sér í vandræði utan vallar.

Þó málið sé nú kannski ekki það alvarlegasta sem við golfáhugamenn höfum heyrt af stjörnum golfsins þá er málið litið alvarlegum augum af japanska golfsambandinu sem hefur í hyggju að refsa kylfingnum fyrir háttsemi sína.

Ég biðst auðmjúkur afsökunar á mistökum mínum,“ sagði Ishikawa sem var klæddur jakkafötum á blaðamannafundi sínum sem hann hélt nýverið. „Ég er mjög ósáttur með sjálfan mig en ætla að einbeita mér að golfinu.“

Ishikawa er íþróttastjarna í Japan og á hann fjölmarga aðdáendur í heimalandinu. Hann vann sitt fyrsta mót á japönsku mótaröðinni þegar hann var aðeins 15 ára gamall. Ishikawa hefur einnig heitið þess að gefa allt það verðlaunafé sem hann vinnur á árinu til styrktar fórnarlamba jarðskjálftans sem varð í Japan fyrr á þessu ári.