Hleð inn spilara...
19. holan | mánudagur 9. maí 2011 | 08:27
GolfTV: Barkley braut dræverinn í fyrsta höggi dagsins
Bandaríska körfuboltahetjan Charles Barkley þykir ekkert sérlega flinkur kylfingur og þrátt fyrir að hafa lagt mikið á sig við að bæta sig á golfvellinum verður honum lítið ágengt. Barkley tók hring á miðvikudag fyrir Regions Traditions mótinu í Alabama og tókst að brjóta dræverinn sinn í sínu fyrsta höggi á hringnum.
Svo virðist sem að gamlir ávanar séu aftur farnir að hrjá Barkley sem er afar hikandi í sveiflu sinni. Þessi sveifla er fyrir löngu orðin heimsfræg enda fáir kylfingar sem hika jafnmikið í sveiflu sinni og körfuboltastjarnan Charles Barkley.
Kylfuhausinn á drævernum fór allt að því lengra en boltinn hjá Barkley og nú ætlar hann að bjóða dræverinn upp til styrktar fórnarlamba fellibylsins sem gekk yfir Alabama-fylki fyrir skömmu. Myndband af atvikinu má sjá í myndbandinu hér að ofan og er svo sannarlega stórskemmtilegt.

Charles Barkley var furðulostinn er kylfuhausinn vantaði á dræverinn.