19. holan | sunnudagur 27. mars 2011 | 15:39
Svört mynd dregin upp af Daly í nýrri bók
Sherrie, fjórða eiginkona kylfingsins litríka John Daly, er að gefa út bók um samband sitt við risameistarann tvöfalda og segir að Tiger Woods líti út eins og dýrlingur samanborinn við Daly.
Bókin hefur fengið heitið My life as a player‘s wife on the PGA Tour og fjallar um líf þeirra saman. Þau voru gift í níu ár en skildu á síðasta ári eftir vægast sagt stormasamt samband. Hún hélt því t.d. fram að Daly hefði ráðist á sig með steikarhníf á veitingastað. Daly mætti síðar útklóraður í andlitinu í golfmót vikunni þar á eftir.
Sherrie heldur því fram í bókinni að Daly hafi ítrekað verið sér ótrúr. Í eitt skiptið mun hún hafa gengið inn á eiginmann sinn með annarri konu. Sherrie þessi er þó engin dýrlingur því hún sat í níu mánuði í fangelsi fyrir peningaþvætti.
Daly mun vera mjög ósáttur með bókina enda þykir hún draga upp ansi svarta mynd af þessum vinsæla kylfingi. Eins og flestir golfáhugamenn vita hefur hann átt í erfiðleikum vegna áfengisvandamála. Hann hefur hins vegar tekið sig á, grennt sig töluvert og þykir spjara sig mun betur í dag. Hann er einnig kominn með nýja kærustu sem sér um öll fjármál og virðast þau eiga mun betur saman en fyrrum eiginkona hans.