19. holan | föstudagur 25. mars 2011 | 15:56

Þrír kylfingar fóru holu í höggi á sömu holu á sama degi!


Ótrúlegir hlutir áttu sér stað á Eastwood golfvellinum í Melbourne, Ástralíu í síðustu viku. Í fyrsta sinn í sögunni, svo vitað sé, fóru þrír kylfingar holu í höggi á sömu holunni á sama degi. Tveir þessara ása komu úr sama ráshópnum.

Það var hin 137 metra langa 14. hola þar sem kraftaverkin áttu sér stað. Dragan Milosevic var sá fyrsti til að fara holu í höggi. Lance Robinson og Linsay Howard, sem léku í sama ráshóp, þurftu einnig aðeins eitt högg á þessari holu og skráðu sig um leið í heimsmetabækurnar.

Það er einstætt að sjá tvo ása á einu og sama skorkortinu,“ sagði Robinson við fjölmiðla í Ástralíu. Mikil stemmning skapaðist í klúbbnum í kjölfar ásanna og fengu kylfingarnir þrír verðlaunagrip frá klúbbnum.

Líkurnar á að fara holu í höggi á 130 metra holu er á bilinu 1 á móti 10.000 til 45.000. Lægri talan á við um atvinnukylfinga. Líkurnar á að tveir kylfingar í sama fjögurra manna ráshópi fari holu í höggi er 1 á móti 17 milljónum. Ekki hefur verið gefnar upp líkurnar á því að þrír kylfingar fari holu í höggi á sömu holunni á sama degi.