Hleð inn spilara...
19. holan | miðvikudagur 16. mars 2011 | 18:26
GolfTV: Hvernig á að slá eins og Happy Gilmore?
Margir kylfingar hafa séð hina frábæru bíómynd Happy Gilmore með Adam Sandler í aðalhlutverki. Golf spilar stóra rullu í þeirri mynd og hefur aðalpersóna myndarinnar afar sérstaka sveiflu af teig sem gerir honum kleift að slá lengra en flestir aðrir kylfingar.
Margir hafa spreytt sig á þessari sveiflu síðan. Það er ákveðin tækni sem þarf að beita til að ná góðri færni í að slá þessi högg. Golfbrellumeistarinn Jeremy Dale sýnir okkur í þessu myndbandi hvernig á að framkvæma þetta skemmtilega högg.
