19. holan | laugardagur 18. desember 2010 | 15:23
Westwood: Að vinna risamót tryggir þér ekki efsta sætið á heimslistanum
Það var athyglisvert viðtal við enska kylfinginn Lee Westwood í The Sun á dögunum. Þar spurði blaðamaðurinn Rob Beasley Westwood spjörunum úr og ræddu þeir sérstaklega þá staðreynd að Westwood er orðinn efsti kylfingurinn á heimslistanum án þess að hafa unnið risamót. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.
Rob Beasley: Hversu mikið pirrar það þig þegar fólk segir að þú sért aðeins bestur í heimi vegna þess að Tiger Woods missteig sig?
Lee Westwood: Golf er leikið á milli eyrnanna og ef þú ert ekki 100% einbeittur á það sem þú ert að gera þá munu aðrir fara fram úr þér, skiptir engu hver þú ert. Staðreyndin er sú að ég hef leikið best undanfarin tvö ár og á því skilið að vera efstur. Atvinnuíþróttir eru mjög óstöðugar og fólk getur ekki verið frábært að eilífu. Við förum öll í gegnum hæðir og lægðir og Tiger er engin undantekning. Við skulum ekki gleyma því að það þurfti að leika mjög vel til að fara fram úr honum og mér tókst það. Við skulum einnig muna að síðan ég varð efstur þá hef ég lent í öðru, þriðja, og fyrsta sæti og það eru margir kylfingar sem þrá slíkan stöðugleika.
RB: Hvað segir þú við þá sem taka þig ekki alvarlega sem besta kylfing heims?
LW: Vegna þess að ég hef ekki unnið risamót? Sko, ég get gert þetta viðtal fyrir þig!
RB: Ok, þú giskaðir rétt á spurninguna en hvert er svarið?
LW: Fólk ruglar saman að vera efstur á heimslistanum og að vinna risamót. Að vinna risamót tryggir þér ekki efsta sætið á heimslistanum. Besti kylfingur í heimi er sá sem er stöðugastur og það sést þegar litið er á heimslistann. Ég hef fengið fleiri stig en nokkur annar kylfingur. Ég hef líka leikið í 5-7 færri mótunum en flestir aðrir en samt er ég efstur.
RB: Hvort myndir þú vilja vera efstur á heimslistanum allt árið 2011 eða vinna risamót?
LW: Ég er búinn að ná efsta sætinu en hef aldrei unnið risamót og þætti vænt um að vinna eitt. Ég myndi hins vegar ekki skipta á því að vera bestur í heimi fyrir sigur í risamóti, það kæmi ekki til greina. Að vinna risamót myndi hafa gríðarlega þýðingu fyrir mig og ég hef trú á því að ef þú leggur hart að þér þá munir þú fá það sem þú átt skilið. Ég veit líka að ég gæti auðveldlega verið kominn með þrjá risasigra nú þegar en raunveruleikinn er sá að ég er ekki kominn með neinn. Það fer í taugarnar á mér en það er ekki eins og að ég sé ekki að koma mér í færi á risasigri. Ef ég held áfram að koma mér í færi þá er ég ánægður. Ég er 37 ára gamall og tel mig eiga góð átta ár eftir og það þýðir að ég hef 32 risamót til að ná sigri.
RB: Hefur líf þitt breyst síðan þú varðst aðalmaðurinn?
LW: Já, það koma svo margir að mér í dag og segja, ‚ég vann þig þegar þú varst 17 ára‘ og það fær mig til að hugsa um hvernig í andskotanum ég gat orðið bestur í heimi ef allir eru að segja við mig að þeir hafi unnið mig þegar ég var yngri? Ég held nú samt að ég hafi aðeins tapað 4-5 sinnum þegar ég var yngri.
RB: Hverjar eru hetjurnar þínar?
LW: Ég ólst upp við að dást af Diego Maradona, Seb Cole og Daley Thompson. Ég elska að sjá slíka fullkomnun í íþróttamönnum. Í dag eru það Rafa Nadal og Lionel Messi. Þeir eru líka stórkostlegir. Það er frábært að horfa á þá og virðast vera svipaðar týpur og ég.
RB: Þú bauðst til að leika golf með fyrir 90 þúsund pund með hverjum sem er fyrir góðgerðarmálefni. Fyrir hvað myndir þú borga 90 þúsund pund?
LW: Ef ég hefði kjarkinn í það, sem ég hef ekki, þá myndi ég vilja ríða Grand National sigurhestinum. Það væri ótrúlegt að stökkva yfir þessar hindranir og vera fyrstur í mark. Vandamálið er að ég er ekki nógu léttur, líklega tíu steinum of þungur.
RB: Hvernig tilfinning er það að veita fólki innblástur?
LW: Það er frábært að hugsa til þess en ég spái ekkert sértaklega í því. Þetta er staða sem ég er að aðlagast og á auðveldara með eftir því sem að tíminn líður.
RB: Hvernig nærðu að halda þér svona andlega sterkum? Hver er íþróttasálfræðingurinn þinn?
LW: Ég er ekki með neinn sálfræðing og þarf engan. Ég hef líka sagt þetta við nokkra félaga mína á mótaröðinni. Ég sagði við nokkra: ‚Ef þú telur þig þurfa á íþróttasálfræðingi að halda, komdu þá með mér í barnaspítalann í Sheffield og ég skal sýna þér hvernig er að eiga alvöru slæman dag‘!
RW: Hverjir fá þitt atkvæði í íþróttamaður ársins í Bretlandi?
LW: Það eru margir frábærir íþróttamenn á listanum mínum. Tony McCoy er einn af þeim sem ég hef alltaf dáð og ég var hæstánægður þegar hann vann Grand National á þessu ári. Phil Taylor hefur einokað píluna undanfarin ár og Graeme McDowell átti frábært ár og vann Opna bandaríska. Ég er hins vegar númer eitt í heiminum og gerði það á tímabili þegar við erum með kylfing (Tiger Woods) sem er líklega sá besti sem leikið hefur þennan leik. Ég ætla ekki að tala niður möguleika mína. Við skulum muna að aðeins 13 kylfingar hafa orðið efstir á heimslistanum frá upphafi og ég komst fram úr kylfingum sem hefur einokað leikinn undanfarin tólf ár. Mér þætti afar vænt um að vinna þessi verðlaun. Nú þurfa allir að taka upp símann og kjósa. Ef ég vinn þá lofa ég að flytja mjög áhugaverða ræðu.