Fréttir | þriðjudagur 2. júní 2009 | 21:06
Monty hugsar fyrir öllu!

Colin Montgomerie, fyrirliði Ryderliðs Evrópu, hefur í mörg horn að líta, sérstaklega þessa dagana þar sem hann tekur þátt í Opna Wales-mótinu á Evrópsku mótaröðinni sem hefst á Celtic Manor á morgun. Það er einmitt sami völlur og Ryder-bikarinn fer fram á á næsta ári þannig að Monty og Corey Pavin, fyrirliði bandaríska liðsins, verða með allar klær úti.
Á bloggi sínu á heimasíðu Ryderliðs Evrópu tiltekur Monty fyrsta mál á dagskrá, hurðirnar inn í búningsklefana. Þær eru stórar og glæsilegar, gerðar úr gegnheilum viði, en fyrirliðinn sá strax í anda hvað gæti gerst.
„Það var eitthvað sem mér fannst einkennilegt við þær og allt í einu uppgötvaði ég hvað það var. Þú sérð ekki hvort einhver sé að koma á móti þér. Það virðist kannski ekki vera stórt vandamál, en ímyndaðu þér að þú sért að koma utan af velli og sért að teygja þig í húninn en einn af liðsfélögum þínum kemur askvaðandi á samatíma og þeytir upp hurðinni á hendina á þér. Bæng! Og Ryderinn er búinn hjá þér í einu vetfangi eftir að hafa pískað þér út í heilt ár. Vallarumsjónarmenn brugðust vel við óskum mínum og ætla að breyta hurðunum strax þannig að annað hvort verði sett gler í þær eða þær útbúnar þannig að þær geti bara opnast í eina átt.“
Það mætti segja ýmislegt um Colin Montgomerie, en hann hugsar fyrir hverju smátriði.
Mynd/golfsupport.nl