leirutilboð
Bookmark and Share

Fréttir | föstudagur 22. maí 2009 | 10:54

Ótrúlegur örn hjá Ragnheiði


Ragnheiður Jónsdóttir úr GK átti sannkallað draumahögg í gær þegar hún fékk örn á 17. holu á Gufudalsvelli í Hveragerði. Það hafði gengið illa á hringnum hjá Ragnheiði en var í þokkalegum málum eftir tvö högg á 17. holunni, sem er par-5 hola. Þó að lega boltans væri þokkaleg, þá var staðsetningin ekki upp á marga fiska, alveg upp við veg, í karga og í niðurhalla. Ragnheiður gat ekki séð inn á flötina þar sem tré birgðu henni sýn en hún sló þó að krafti um 120 metrum frá holu.

Boltinn fór í "dogleg" eftir allri brautinni en boltinn rúllaði um 70 metra af þeim 120, þar sem hann endaði beint ofan í holunni. Ótrúlegur örn úr vonlausri stöðu og mikið fagnaðarefni fyrir Ragnheiði sem var að fá sinn fyrsta örn á ferlinum. Hún líkti tilfinningunni við að fara holu í höggi enda ekki á hverjum degi sem kylfingar fá örn af 120 metra færi.

Ragnheiður er með um 24 í forgjöf og var að leika í ABC-mótaröðinni en leikið er í fyrstu umferðinni út mánuðinn. Ef þið kylfingar lumið á skemmtilegri sögu af holu í höggi, erni, fugli eða jafnvel skolla, þá skuluð þið ekki hika við að senda okkur línu á jjk@vf.is.

Mynd/golf18.is: Ragnheiður var í skýjunum eftir ótrúlegan örn á 17. holu á Gufudalsvelli.

Senda á Facebook