Fréttir | fimmtudagur 2. apríl 2009 | 07:34
Enginn Monty í Kringlunni

Ekki mættu margir á skókynningu Colins Montgomerie í Kringlunni í gær, sem er vel, því sú uppákoma var uppspuni frá rótum í tilefni af 1. apríl.
Þó voru nokkuð fleiri sem höfðu áhuga á að sjá prúðmennið Camilo Villegas missa sig í skapofsakast en fengu í staðinn góðar leiðbeiningar um það hvernig á að gera vinum, óvinum og ættingjum grikk.
Dustin, greyið, Johnson var hins vegar vissulega tekinn fyrir ölvun við akstur þó margir hafi eflaust haldið og vonað að um spaug væri að ræða.
Meðfylgjandi mynd er samsett. Monty var ekki í Islandia-búðinni í gær eftir því sem heimildarmenn kylfings.is herma