Fréttir | laugardagur 21. mars 2009 | 13:37
Sörenstam með barni
Rúmi hálfu ári eftir að Annika Sörenstam hætti í keppnisgolfinu þá er hún að verða móðir. Hún tilkynnti þetta á heimasíðu sinni á dögunum að hún og maðurinn hennar, Mike McGee, ættu von á sínu fyrsta barni.
Sörenstam var mjög sigursæl á sínum atvinnumannaferli, vann 72 sigra á LPGA-mótaröðinni og 10 risamót. Núna langar henni hins vegar að stofna sitt eigið fyrirtæki og fjölskyldu.
„Við erum búin að ganga í gegnum nokkrar spennandi breytingar á undanförnum mánuðum. Viðbót í fjölskylduna er klárlega ofarlega í okkar huga. Við erum í skýjunum með þennan nýja kafla í okkar lífi,“ sagði Sörenstam.
Mynd/golfsupport.nl: Golfdrottningin fyrrverandi, Annika Sörenstam, mun fæða erfingja í haust.