19. holan | mánudagur 12. janúar 2009 | 09:01

Annika giftist Mike


Sænska golfdrottningin Annika Sörenstam giftist Bandaríkjamanninum Mike McGee í Orlando í Flórída á laugardaginn. Fjögur ár eru síðan þau fóru að sjást saman, í fyrsta sinn opinberlega á Solheim Cup haustið 2005. 125 gestir mættu í brúðkaupsveisluna um helgina sem fram fór í veislusal klúbbhússins á Lake Nona Golf and Country Club vellinum í Orlando. Í byrjun febrúar ætla þau í brúðkaupsferð og verður það skíðaferð.

Annika hefur verið fremsta golfkona heims í 20 ár, en hún hefur nú ákveðið að hætta keppni og stofna fjölskyldu. Hún mun þó taka þátt í einhverjum boðsmótum á þessu ári, m.a. í Skins Game þar sem hún mun etja kappi við Lorena Ocho, Natalie Gulbis og Paulu Creamer. Mótið nefnist Annika Celeebratio og fer fram 1.-3. febrúar.  Í næstu viku stendur Annika fyrir sterku unglingamóti, sem nefnist Annika Invitational, og fram fer á Ginn Reunion Resort. Þar keppa 60 ungir og efnilegir kylfingar frá hinum ýmsu löndum.

Myndir: Annika Sörenstam og Mike McGee gengu í hjónaband í Orlando sl. laugardag.