19. holan | mánudagur 5. janúar 2009 | 16:12

Sló golfbolta 710 metra!


Sænska golfkonan Jessica Wallström setti á laugardaginn nýtt óopinbert heimsmet er hún sló golfbolta 720 metra! Hún bætti eldra metið sem hún átti sjálf um tæpa 200 metra. Árleg dræve-keppni er haldin í skíðabrekkunni í Stöten í Sälen þar sem kylfingar slá af teig efst í skíðabrekkunni og síðan fer það eftir aðstæðum hve boltinn rúllar langt niður brekkuna. Brekkan var óvenju hörð og vel troðin þegar keppnin fór fram að þessu sinni og boltinn fékk  þvi gott rúll.

Venjulega sér Jessica Wallström hvar boltinn lendir, en það gerði hún ekki á laugardaginn. Hún sló af teig efst í nýrri World Cup skíðabrekkunni í Stöten og sló sjálflýsandi bolta sem flaug nánast niður alla brekkuna. Boltinn stöðvaðist ekki fyrr en eftir 710 metra og er það lengsta högg sem vitað er um að slegið hafi verið á snjó. 21 kylfingur tók þátt í þessari keppni og hafnaði Kristoffer Johnsson í öðru sæti, 20 metrum styttri en Wallström. Í fyrra sló Wallström 512 metra sem þá var met í kvennaflokki, en þá var karlametið 567 metrar.

Sjá nánar á Svensk Golf.

Mynd/Svensk Golf: Jessica Wallström slær hér af brekkubrúninni í Stöten í Sälen í Svíþjóð á laugardag.