19. holan | mánudagur 5. janúar 2009 | 15:06
Golf getur skaðað heyrnina
Það er margs að gæta fyrir kylfinga og það nýjasta er hávaðinn sem nýjustu dræverarnir gefa frá sér þegar slegið er. Já, ef þú notar King Cobra LD títaníum dræver getur þú skaðað heyrnina. Fram kemur í tímaritinu British Medical Journal að 55 ára gamall kylfingur hafi orðið fyrir heyrnarskaða við að slá með slíku verkfæri. Hann spilaði 18 holur þrisvar í viku samfleytt í 18 máði. Hávaðinn í drævernum mælist 130 decibel, sem er langt umfram leyfileg hávaðamörk.
Læknar sem rannsökuðu kylfinginn umrædda segja að hann hafi skaðað heyrnina varanlega á hægra eyra við að nota King Cobra LD titanium dræver, sem gefur frá sér hátt hljóð, "eins og skoti sé hleypt af byssu". Hann ákvað á endanum að hætta að nota kylfua, en þá hafði hann þegar orðið fyrir heyrnarskaða.
Læknar við háskólasjúkrahúsin í Norfolk og Norwich gerðu nokkrar rannsóknir á manninum. Hann var með suð í eyrunum auk þess sem hann hafði misst heyrn á hægra eyra.
Það er kannski rétt að hafa þetta í huga næst þegar kylfingar kaupa sér dræver.
Mynd: Camilo Villegas ætti kannski að láta athuga hjá sér heyrnina?